Tuesday, May 10, 2005

 

Mig dreymdi ógeðslegan draum í nótt...

Þessi draumur byrjaði ekkert ógeðslega, ég var heima hjá einhverjum og var að þurrka upp eitthvað ógeð af trjárót sem var þarna inni hjá manneskjunni (já ég veit, það eru ekki trjárætur inni hjá fólki, en þetta var draumur), jógúrt eða eitthvað, og ég er semsagt með eldhúsþurrkuna að þurrka þegar ég sé könguló rétt við puttana á mér svo ég kippi hendinni að mér (fóbían treður sér inní draumana mína). Þá bendir einhver annar mér á stóra könguló sem er þarna nálægt, og ég fer að hugsa að hún hljóti að vera akkúrat ofan á fætinum á mér því ég finn fyrir henni. Svo þegar ég fer að skoða þetta aðeins nánar þá sé ég að fóturinn minn er ekkert nálægt henni (heldur er ég allt í einu ekki með vinstri fót) en ég finn samt fyrir henni, og hægt og rólega lýkst það upp fyrir mér að ÉG er köngulóin og vinstri fóturinn í mér hefur breyst í hana og það sem ég finn er ég sjálf, þ.e. köngulóin að anda og hreyfa sig. Og ÞÁ fríkaði ég svo gjörsamlega út að ég vakti sjálfa mig og Einar í leiðinni. Man oh man, mér leið svo illa.... Hugsið ykkur samt að vera svona illa haldin af fóbíu yfir einhverju pínulitlu dýri sem mun aldrei gera mér neitt..... jæja, þess vegna er þetta víst skilgreint sem "irrational fear"...

Þegar ég vaknaði í morgun skein sólin og ég hleypti kettinum út, hugsaði með mér að nú væri sko veðrið til að hann kæmi ekkert inn næstu fjóra tímana. Fimm mínútum seinna var komin slydda. Hvað er í gangi? Er páskahretið ekki búið? Ég vil fá sumar, takk, nenni þessu ekki. Reyndar er kötturinn ekki enn kominn á gluggann, en það er líka svo stutt síðan í hleypti honum út, ekki enn búin að fá mér morgunmat. Hann á eftir að labba hringinn sinn og þefa af öllu pissinu sem hann finnur og svona.

Ég ætla núna að byrja að taka lýsi í stíl við nýja mataræðið mitt. Og vítamín. Ég gleymi þessu venjulega, en núna þegar ég verð að borða hollt í öll mál, þá hlýt ég að muna þetta. Mundi þetta allavega í morgun :) Ég gerði eitt rosalega gott í gær, þá hrærði ég eggjahvítur á pönnu, svona fjórar, hitaði tortilluköku smá og smurði hana með sterkri salsasósu, setti svo ferskt spínat ofan á, paprikustrimla og eggjahvíturnar. Þetta var auðvitað meinhollt og ógeðslega gott! Mæli með að þið prófið þetta :)
Comments: Post a Comment

<< Home

This page is powered by Blogger. Isn't yours?