Tuesday, May 10, 2005

 

God, ég er að deyja úr leiðindum

Þessi BA ritgerð er að gera mig vitlausa. Hvað á ég að skrifa mikið um bragðlauka? Og það er bara eitt smá brot af því sem þessi ljóti inngangur á að fjalla um. Hvernig á ég að vita hvernig þessi ferli ganga fyrir sig? Og "vísindaleg röksemdafærsla fyrir því af hverju við teljum það áhugavert að prófa þetta og af hverju við teljum það réttlætanlegt" eða eitthvað svona crap. Hvað með: Af því að Kata las þetta í Fréttablaðinu og okkur fannst þetta hljóma bæði spennandi og einfalt. Nógu góð röksemdafærsla?

Ég fór í morgun niður í búningadeild Icelandair og náði í töskuna mína, hattinn minn og ýmislegt annað smálegt. Hmmm ég fékk semsagt tösku, hatt, veski, hanska, hálsklút, 2 skyrtur og 3 sokkabuxur. Haldiði ekki að mín verði vígaleg, nú vantar bara sólgleraugun (eða eitthvað...zzz). Taskan er frá Samsonite (minnir mig á Dumb&Dumber, tíhí: "SAAAMSONITE! I was way off! :)) og er einhver rosa græja. Maður ýtir á takka og þá pompar svona handfang út til að draga hana á eftir sér, og svo ýtir maður því bara aftur inn og þá er það horfið, svo er hægt að stækka hana með því að renna einum rennilás og draga meira efni út (líkt og "self-erecting canopies" sem ég var að læra um í seinustu viku...:) en það er ein tegund björgunarbáta á 767 flugvélunum með þetta skemmtilega nafn) og svo er líka lás á töskunni fyrir rennilásinn. Þá treður maður semsagt rennilásagaurunum inn í eitthvað svona dæmi og velur sér svo númer, eins og á talnalás. Íris sem er með mér á fluffunámskeiðinu sýndi mér þetta og tróð þeim inn, og svo þegar ég ætlaði að opna hana heima lenti ég bara í meiriháttar vandræðum, algjör auli að reyna að pikka þetta út og toga og tosa í þetta.... fríkaði alveg út: "Ég er búin að EYÐILEGGJA þetta... hjálp!!"Þá átti maður bara að ýta einhverjum tökkum inn og þá opnaðist þetta af sjálfu sér... lúði.
Svo er þessi hálsklútur alveg óborganlega cheesy... allavega þegar maður prófar hann í gallabuxum og rauðum stuttermabol.... en það er kannski ekki alveg að marka ;)
Comments: Post a Comment

<< Home

This page is powered by Blogger. Isn't yours?