Monday, March 28, 2005
Er með ljótuna í dag
Ok, nú er kominn tími á að ég noti þennan blogspot til að tjá mig sko. Einar er ekki heima og ég ligg hérna uppi í rúmi með tölvuna fyrir framan mig, ætti að vera að gera eitthvað uppbyggilegt eins og að læra eða þrífa eða elda eða eitthvað, jafnvel fara út að hlaupa, hmmmm... en nei, hvað er ég að gera? Enn einu sinni hangi ég á netinu og læt mig dreyma um hvað ég ætti nú eiginlega að læra. Ég veit hreinlega ekkert hvað mig langar að gera! Ég fæ alveg grænar bólur af því að hugsa út í alla valkostina, og fer svo að hugsa, ætli ég verði einhvern tímann hamingjusöm í þessu eða hinu starfinu? Djíses..... *sigh* Það væri auðvitað lang gáfulegast að byggja ofan á það BA nám sem ég mun klára núna í vor (ef allt gengur að óskum), en ég er samt alls ekki viss um að mig langi eitthvað hrikalega að vinna við eitthvað sálfræðitengt.... en samt... og þó.... það er ekkert bara hægt að segja svona því ég asnaðist auðvitað til að velja það fag sem hefur einna flestu valkostina eftir grunnnám... og svo er ég búin að vera að slefa yfir sjávarlíffræði núna undanfarið... fann einn æðislegan skóla í sjávarlíffræði, James Cook University, í Ástralíu hvorki meira né minna, rétt við the Big Reef, djö... að ég hafi ekki drullast á náttúrufræðibraut í menntaskóla svo ég hefði haft þann valkost að fara í líffræði hérna heima... ARG! get orðið geðveik! Svo fann ég eitt annað, behavior biology, sem einhverjir eru að sérhæfa sig í hérna heima, en þegar ég sló þetta inn í Google þá fékk ég ekkert rosa mikið upp, bara "behavior, biology" eitthvað. Æiiiii.... hjálp...